Kaldur júlí hefir kvatt

Góður skjólfatnaður kom sér vel í júlí.
Góður skjólfatnaður kom sér vel í júlí. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Júlímánuður var mjög kaldur víðast hvar á landinu. Sérlega kalt var norðaustan- og austanlands, en hiti nærri meðallagi suðvestanlands. Óvenjuþurrt var um landið norðvestanvert í mánuðinum.

Þetta kemur fram í bráðabirgðayfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.

Meðalhiti í Reykjavík í júlí var 11,4 stig og er það 0,8 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en -0,9 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 8,4 stig, -2,1 stigi undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -3,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti júlímánuður á Akureyri síðan 1993.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert