Skilaði veski fullu af peningum

Maðurinn skilaði veskinu fullu af peningum, sem eigandinn hafði týnt.
Maðurinn skilaði veskinu fullu af peningum, sem eigandinn hafði týnt.

Óþekktur maður kom á lögreglustöðina við Hringbraut í Reykjanesbæ í dag og skilaði veski sem hann fann á bensínstöð í umdæminu.

Það er nú kannski ekki það sem færsluritara facebooksíðu Lögreglustjórans á Suðurnesjum finnst markverðast heldur það að í veskinu var talsvert magn af reiðufé ásamt skilríkjum eiganda.

Haft var uppi á eiganda veskisins og kom hún í kvöld og sótti veskið. Eigandinn, sem var erlendur ferðamaður og eldri kona, felldi tár af gleði er hún sótti veskið sitt og vildi hún senda þessum óþekkta og strangheiðarlega vegfaranda „risaknús“ fyrir skilvísina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert