Vann 45,2 milljónir í lottó

Einn heppinn áskrifandi var með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins í lottóinu. Hann nældi sér þar með í allan pottinn og fær rúmlegar 45,2 milljónir króna í vinning.

Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig rúmlega 196 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur í Samkaup Strax á Laugarvatni, einn í Happahúsinu í Kringlunni og sá þriðji á lotto.is.  

Þá voru tveir með fjórar réttar tölur í Jókernum og fá þeir hundrað þúsund krónur í vasann. Annar miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni en hinn í Hagkaup við Litlatún í Garðabæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert