Að jafnaði voru farin 65 áætlunarflug á dag frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði sem er níu ferðum meira en á sama tíma í fyrra samkvæmt talningum Túrista.
Langflest flugfélögin bættu við ferðum milli ára en hlutfallslega var aukningin mest hjá easyJet (40%) og WOW air (35%). Icelandair stóð hins vegar undir mestri viðbótinni því vélar félagsins tóku 132 sinnum oftar á loft frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí en á sama tíma í fyrra. Hjá WOW fjölgaði ferðum um liðlega áttatíu og um þrjátíu hjá easyJet. Í heildina fjölgaði áætlunarferðum frá flugvellinum um 268 samkvæmt útreikningum Túrista.
Stefna á að tvöfalda Leifsstöð