Ekkert nýtt komið fram um hótanir

Ekkert nýtt hefur komið fram í máli Rússa um að …
Ekkert nýtt hefur komið fram í máli Rússa um að láta verða af hótunum sínum um refsiaðgerðir við Íslendinga.

Ekkert nýtt er að frétta af hótunum Rússa um refsiaðgerðir gagnvart Íslandi og fimm öðrum ríkjum sem lýstu stuðningi við refsiaðgerðir Evrópusambandsins og vesturlanda gagnvart Rússlandi. Í síðustu viku var hótunin höfð eftir talsmanni rússneskra stjórnvalda. Samkvæmt sendiráði Íslands í Moskvu er ekkert nýtt að frétta af málinu, en að öðru leyti er vísað á ráðuneytið varðandi spurningar af málinu.

Mörg íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa lýst áhyggjum vegna málsins, en Íslendingar selja gríðarlega mikið af sjávarafurðum til Rússlands. Þannig fór um helmingur makrílafurða árið 2013 til Rússlands og í heild er Rússland stærsti uppsjávarmarkaður Íslendinga. Í fyrra voru seld 120.000 tonn af uppsjávarafurðum þar, en um er að ræða makríl, síld og loðnu.

Þingmaðurinn Ásmundur Friðriksson sagði um helgina að hann teldi rétt að vegna málsins tæki Ísland sig af lista yfir þjóðir sem vilja viðskipta­bann á Rússa. Birg­ir Ármanns­son, formaður ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Alþing­is og flokksbróðir Ásmundar, tel­ur aftur á móti ekki til­efni til að Ísland dragi stuðning sinn við viðskiptaþving­an­ir gagn­vart Rússlandi til baka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert