Ráðist á konu á öfugum helmingi gangstígs

Hundur. Mynd úr safni.
Hundur. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur haft í nokkru að snú­ast í nótt og í dag. 

Rétt fyrir hálf tvö í dag barst lögreglunni í Kópavogi og Breiðholti tilkynning um mann sem hafði ráðist á konu með hrindingum og spörkum. Konan var úti að ganga með hundinn sinn en maðurinn var ósáttur við að konan gengi á öfugum helmingi göngustígins að mati mannsins. Konan hlaut engin meiðsl og lagði ekki fram kæru.

Um klukkustund síðar var tilkynnt um mann sem grunaður var um þjófnað úr verslun við Laugaveg. Hann náðist skömmu síðar og var vistaður í fangageymslu vegna ölvunar. Þýfi sem hann var með á sér var skilað í viðeigandi verslun og skýrsla verður tekin af honum þegar víman rennur af honum.

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert