„Rólegasta helgi ársins“

Umferð á vegum landsins er farin að þyngjast nokkuð, enda …
Umferð á vegum landsins er farin að þyngjast nokkuð, enda fólk að halda heim eftir verslunarmannahelgina. Hjá flestum lögregluembættum hefur þó verið mjög rólegt alla helgina. Eggert Jóhannesson

Helgin hefur að mestu verið mjög róleg hjá lögregluembættum víðsvegar um landið þar sem ekki eru stærstu hátíðahöldin og lýsti lögreglufulltrúi á Húsavík því þannig að um væri að ræða rólegustu helgi ársins. Umferðin er þó að þyngjast á átt að höfuðborgarsvæðinu, en hingað til hefur þó umferðin gengið að mestu stór áfallalaust fyrir sig.

Þegar blaðamaður heyrði í lögreglunni á Egilsstöðum var svarið stutt og einfalt varðandi hvernig helgin hefði verið: „rólegt.“ Sömu sögu var að segja frá Dalvík og á Vopnafirði sagði lögreglumaður að ekkert mál hefði komið upp alla helgina. „Rólegt og þægilegt,“ var lýsingin þaðan.

Á Húsavík var lögreglukona til svara og var ekkert að skafa af því. „Bærinn tæmdist,“  sagði hún og bætti við að þetta væri „rólegasta helgi ársins.“

Í Borgarnesi og Blönduósi var svipaður tónn í lögreglumönnum, en því þó bætt við að umferðin væri að þyngjast. Lögreglumenn frá báðum embættum, sem og flestum öðrum sem mbl.is ræddi við í dag, verða við eftirlit á vegum úti í allan dag. Hingað til hefur umferðin þó að mestu gengið vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert