Týndur ferðamaður á Hornströndum

Hornstrandir
Hornstrandir Landhelgisgæslan

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út fyrir stundu til leitar að göngumanni á Hornströndum.

Maðurinn hafði samband við Neyðarlínu, sagðist villtur upp af Lónafirði á milli Jökulfjarða og Hornstranda. Lítið skyggni er á svæðinu og maðurinn sem er frá Frakklandi gat illa lýst aðstæðum. Farsími mannsins er að verða rafhlöðulaus.

Sigla þarf björgunarmönnum á björgunarskipi og bátum á svæðið og eru þeir á leið þangað núna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert