Hinsegin dagar hefjast í dag

Hinsegin dagar hefjast í Reykjavík í dag. Eva María Þórarinsdóttir Lange formaður Hinsegin daga og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setja hátíðina með opnun ljósmyndasýningar á Skólavörðustíg kl. 12 á hádegi.

Á sýningunni er brugðið upp 24 ljósmyndum frá ýmsum viðburðum Hinsegin daga síðasta áratuginn. Myndirnar koma úr einkasafni Geirax en hann hefur myndað viðburði tengda hátíðinni um árabil.

Í framhaldi af opnun ljósmyndasýningarinnar munu Dagur og Eva María taka þátt í götumálun þar sem Skólavörðustígnum verður breytt í regnboga. Götumálunin er unnin í samstarfi við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og er hluti af verkefninu „Sumargötur” í miðborg Reykjavíkur.

Hinsegin dagar hvetja gesti til að fjölmenna á staðinn og aðstoða við málningarvinnuna. Málning verður á staðnum svo og takmarkað magn málningarpensla og fólk er því hvatt til að koma með eigin pensla og rúllur.

Hinsegin dagar í Reykjavík eru í ár haldnir hátíðlegir í sautjánda sinn og verður hátíðin glæsileg sem endranær en þemað í ár er heilsa og heilbrigði. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi en nærri 30 viðburðir standa gestum til boða fram til sunnudagsins 9. ágúst. Í boði verða m.a. tónlistarviðburðir, ljósmyndasýningar, sirkusveisla, dansleikir og fræðsluviðburðir svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Sem fyrr nær hátíðin hámarki með Gleðigöngu Hinsegin daga og Regnbogahátíð við Arnarhól laugardaginn 8. ágúst þar sem líkt og fyrri ár má búast við tugþúsundum gesta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert