Stal bíl, fötum og skóm

Lögreglan hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og nótt …
Lögreglan hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og nótt líkt og oft áður. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglunni barst tilkynning um þjófnað úr starfsmannaðstöðu fyrirtækis í Laugardal um ellefuleytið í gærkvöldi. Þar hafði verið stolið fatnaði, skóm og lyklum að bifreið. Hafði þjófurinn notað lyklana og stolið bifreiðinni á stæði fyrir utan fyrirtækið.

Síðdegis í gær var maður í mjög annarlegu ástandi handtekinn í miðborginni en hann er grunaður um þjófnað úr verslun við Laugaveg. Hann gistir fangageymslu og verður rætt við hann þegar ástand hans batnar.

Stolið var þremur felgum og dekkjum undan tveimur bifreiðum við Fiskislóð í nótt. Ekki er vitað hver var þar að verki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert