Stálu bíl þegar þau losnuðu úr haldi

mbl.is/Sigurður Bogi

Ungmenni sem voru handtekin af lögreglunni á Selfossi í gær eftir að hafa ekið bifreið út af Kjalvegi í fyrrinótt gerðu sér lítið fyrir og stálu annarri bifreið þegar þeim var sleppt úr haldi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var fólkinu sleppt úr haldi í gærkvöldi og virðist sem þau hafi farið beint að sundhöllinni á Selfossi og stolið þar annarri bifreið. Þeirra er nú leitað af lögreglu en upplýsingar hafa borist um ferðir þeirra.

Ungmennin, sem eru um tvítugt, voru undir áhrifum fíkniefna og á stolnum bíl er þau óku út af uppi á Kjalvegi í fyrrinótt. Þau sluppu án meiðsla. 

Ungmenni í vímu á stolnum bíl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert