„Við þurfum vel rekin fjármálafyrirtæki“

Elín Hirst
Elín Hirst

Þingkonan Elín Hirst segir að það hafi verið skynsamleg ákvörðun hjá bankaráði Landsbankans að fresta hönn­un­ar­sam­keppni um fyr­ir­hugaða ný­bygg­ingu bankans. Var það gert  til fara yfir þau sjón­ar­mið sem fram hafa komið á síðustu vik­um en áætlanir bankans hafa verið gagnrýndar m.a. af Elínu, þingmanninum Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. 

„Við þurfum vel rekin fjármálafyrirtæki sem stunda frjálsa samkeppni með því að nýta svigrúm markaðarins til þess að bjóða viðskiptavinum sínum betri kjör og skila eigendum sínum arði, en ekki auka yfirbygginguna. Auk þess þurfum við meira mannlíf í miðbæinn, en ekki banka, sem nær enginn þarf að heimsækja nú til dags, á dýrmætasta stað," skrifar Elín á Facebook síðu sína. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert