Alvarlegt slys við Jökulsárlón

Jökulsárlón á Breiðamerkursandi.
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Síðdegis í dag varð alvarlegt slys við Jökulsárlón, að því er fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. Tildrög slyssins eru óljós, en í fréttinni, sem var birt fyrir um kl. 19, segir að viðbragðsaðilar séu enn við störf á vettvangi.

Samkvæmt lögreglu er hinn slasaði erlendur ferðamaður sem var á ferð við lónið ásamt fjölskyldu sinni.

Fram kemur á Facebook-síðunni að frekari upplýsingar verði ekki gefnar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert