Innkalla Bónus Vínarpylsur

Pylsur.
Pylsur. mbl.is/Jim Smart

Síld og fiskur ehf hefur í varúðarskyni ákveðið að innkalla Bónus Vínarpylsur vegna aðskotahlutar sem fundist hefur í einni pylsu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síld og fisk. Unnið er að því að fjarlægja við komandi vörur úr verslunum.

Um er að ræða Bónus Vínarpylsur sem hafa pökkunardagana 19.8.2015, 20.8.2015 og 21.8.2015. Ekki er um að ræða aðrar dagsetningar.

Neytendum sem eiga vöruna er bent á að skila þeim til fyrirtækisins eða í næstu Bónusverslun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert