Kallar saman viðbragðshóp

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Kristinn Ingvarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur óskað eftir því að kallaður verði saman hópur ráðuneytisstjóra og fulltrúa viðeigandi stofnanna til að fara yfir þá stöðu sem skapast hefur á Siglufirði og Ólafsfirði vegna óvenju mikillar rigningar undanfarna daga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þar segir að rigningarnar hafi m.a. valdið vatns- og aurflóðum á svæðinu. Hópnum sé ætlað að meta hvernig bregðast megi við, meðal annars í samráði við bæjaryfirvöld í Fjallabyggð.

„Þarna hafa átt sér stað mjög óvenjulegir atburðir. Nauðsynlegt er að bregðast skjótt við, fara yfir stöðuna með okkar lykilstofnunum og meta hugsanleg viðbrögð. Það munum við gera í góðri samvinnu við heimamenn,“ er haft eftir forsætisráðherra í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert