Forsætisráðherra heimsækir Fjallabyggð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Golli

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, mun heimsækja Fjallabyggð síðdegis í dag og hitta þar heimamenn og kynna sér aðstæður á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Í dag fundaði samráðshópur ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu þar sem farið var yfir stöðu mála vegna tjóns af völdum vatnavaxta í Fjallabyggð og á Ströndum. Á fund hópsins komu m.a. Vegamálastjóri, Veðurstofustjóri og framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar var í símasambandi.

Farið var yfir þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til og þá vinnu sem nú stendur yfir og áframhaldið metið.

Ljóst er að umtalsvert tjón hefur orðið í Fjallabyggð og á vegamannvirkjum á Ströndum en veður hefur nú gengið niður á þessum slóðum og ekki er talið að bráð hætta steðji lengur að. Unnið er að frekari gagnaöflun með það að markmi ði að unnt verði að bregðast hratt og vel við í samráði við heimamenn. Viðlagatrygging vinnur nú að því að koma á framfæri ítarlegum upplýsingum til íbúa um stöðu mála, bótaskyldu og með hvaða hætti skuli tilkynnt um tjón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert