Skinney-Þinganes kaupir Auðbjörgu

Frá Höfn í Hornafirði.
Frá Höfn í Hornafirði. mbl.is/Kristinn Benediktsson

Samkomulag hefur verið gert um kaup Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn í Hornafirði á öllum hlutabréfum í Auðbjörgu hf. á Þorlákshöfn. Samkomulagið er með fyrirvörum, m.a. um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Skinneyjar-Þinganess og Auðbjargar.

Ef af kaupunum verður, verður Skinney-Þinganes með starfsemi á Höfn og í Þorlákshöfn. Með þeim hyggst Skinney-Þinganes styrkja sig í sessi sem eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og treysta enn ferkar fjölbreyttan rekstur í útgerð, fiskvinnslu og sölu.

„Auðbjörg ehf. hefur frá stofnun árið 1970 verið með starfsemi í Þorlákshöfn. Fyrirtækið hefur undanfarin tuttugu og fimm ár keypt skip og aflaheimildir til að styrkja rekstur fyrirtækisins. Þrátt fyrir kaup veiðiheimilda hefur fyrirtækinu ekki tekist að halda í við skerðingu á þeim veiðiheimildum er fyrirtækið ræður yfir. Það er mat eigenda að rétt sé og tímabært að koma fyrirtækinu í hendur traustra aðila sem hafa það að markmiði að halda áfram starfsemi fyrirtækisins í Þorlákshöfn,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert