Banaslys á Suðurlandsvegi

mbl.is

Einn farþega bifreiðarinnar sem fór útaf Suðurlandsvegi við ána Klifanda um kl. 15 í dag var úrskurðaður látinn á vettvangi. Ökumaðurinn slasaðist alvarlega og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Líðan hans er eftir atvikum.

Meiðsl annarra farþega eru minni, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Þar segir að tildrög slyssins séu óljós en lögreglumenn á Suðurlandi vinna að rannsókn á vettvangi. Áfram má búast við umferðartöfum við vettvang.

Frétt mbl.is: Alvarlegt slys skammt frá Pétursey

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert