Stolið í verslun og á veitingahúsi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Klukkan 11.50 í morgun var tilkynnt um þjófnað á veitingahúsi á svæði lögreglunnar í miðborginni og Vesturbæ. Þá var tilkynnt um þjófnað í verslun á sama svæði kl. 16.

Klukkan 13 var tilkynnt um innbrot í íbúð á svæði lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti, og þá voru höfð afskipti af ökumanni í Álfheimum kl. 14.40 sem er grunaður um ölvun við akstur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert