Innbrot og þjófnaður

mbl.is

Brotist var inn á tveimur stöðum í nótt á höfuðborgarsvæðinu og þjófur var á ferð á hóteli í miðborginni, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Um tíu leytið í gærkvöldi var tilkynnt til lögreglunnar um þjófnað úr afgreiðslu hótels í miðborginni. Meðal annars var fartölvu stolið frá starfsmanni hótelsins. Fartölvan fannst skömmu síðar og var skilað til eiganda.  Grunaður þjófur var handtekinn um fjögur leytið í nótt og gistir nú fangageymslu.

Um þrjúleytið var tilkynnt um innbrot í skóla í Kópavogi og um svipað leyti um innbrot á bensínstöð við Kringlumýrarbraut. Ekki liggur fyrir hverju var stolið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert