Kvikmyndin Fúsi eftir Dag Kára Pétursson tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent 27. október í Hörpu og hlýtur sigurvegari að launum 350.000 danskar krónur, eða um 7,5 milljónir íslenskra króna.
Myndirnar sem eru tilnefndar eru: Stille hjerte (Danmörk): Leikstjóri Bille August, handritshöfundur Christian Torpe og framleiðandi Jesper Morthorst
He ovat paenneet (Þau hafa flúið) (Finnland): Leikstjóri J-‐P Valkeapää, handritshöfundur Pilvi Peltola og framleiðandi Aleksi Bardy
Fúsi (Ísland): Leikstjóri/handritshöfundur Dagur Kári Pétursson og framleiðendur Baltasar Kormákur og Agnes Johansen
Mot naturen (Noregur): Leikstjóri/handritshöfundur Ole Giæver og framleiðandi Maria Ekerhovd
Gentlemen (Svíþjóð): Leikstjóri Mikael Marcimain, handritshöfundur Klas Östergren og framleiðandi Fredrik Heinig
Í íslensku dómnefndinni sátu Kristín Jóhannesdóttir, Björn Ægir Norðfjörð og Auður Ava Ólafsdóttir.