Pylsur innkallaðar vegna aðskotahluts

mbl.is/Jim Smart

Síld og fiskur ehf. hefur innkallað tvær framleiðslulotur af Bónus vínarpylum með þremur pökkunardagsetningu vegna aðskotahlutar sem fannst í einni pylsunni.

Fram kemur á vefsíðu Matvælastofnunar að um sé að ræða pökkunardagsetningarnar 19., 20. og 21 ágúst 2015.

Tekið er fram að innköllunin nái ekki til annarrra dagsetninga. Er neytendum sem eiga umræddar vörur bent á að skila þeim beint til framleiðandans eða í næstu Bónusverslun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert