Þrjú í haldi vegna líkamsárása

Lögreglustöðin á Hverfisgötu
Lögreglustöðin á Hverfisgötu mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Tveir karlar og ein kona voru handtekin í gærkvöldi fyrir líkamsárásir og gista þau öll í fangaklefa vegna málanna. Í öllum tilvikum voru árásirnar framdar á heimilum og gerendur ölvaðir.

Um áttaleytið var kona handtekin á heimili í Bryggjuhverfi grunuð um líkamsárás. Um svipað leyti var maður handtekinn á heimili í Kópavogi grunaður um líkamsárás. Sá þriðji var handtekinn um tíu leytið í gærkvöldi í vesturbænum grunaður um líkamsárás. Eins og áður sagði voru þau öll drukkin og gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert