Kveikt í miðasöluskúr

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um þrjú leytið í nótt vegna elds í miðasöluskúr við Valbjarnarvöllinn í Laugardalnum.

Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu var það vegfarandi sem varð var við eldinn og hringdi í neyðarlínuna. 

Fullvíst er talið að kveikt hafi verið í skúrnum og er hann mjög mikið skemmdur eftir brunann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert