Rétt að byrja á réttum enda

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

„Íslendingar hafa farsæla reynslu af því að taka á móti flóttamönnum og rétt er að halda því áfram eftir því sem efni og aðstæður leyfa. Sjálfsagt er að vera í góðu samstarfi við ríkisvaldið um móttöku slíkra flóttamanna hér eftir sem hingað til,“ segir í bókun Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegna þverpólitískrar tillögu sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag þess efnis að óskað yrði eftir viðræðum við ríkið um að taka við fleiri flóttamönnum en áður hafði verið gert ráð fyrir. Kjartan sat hjá við afgreiðsluna.

„Hins vegar skal varað við því að borgarstjórn skuli að óathuguðu máli hvetja til fjöldaflutninga á flóttamönnum til Reykjavíkur umfram þann fjölda sem nú þegar hefur verið ákveðinn og án þess að ljóst sé með hvaða hætti það verður gert. Áður en slík hvatning er samþykkt hefði verið eðlilegt að byrja verkefnið á réttum enda og kanna raunverulegt svigrúm og getu borgar og ríkis til að taka við stórauknum fjölda flóttamanna í borginni. T.d. þarf að athuga hvernig skólar borgarinnar, velferðarþjónusta og sjúkrahús eru í stakk búin til að auka umsvif sín í samræmi við slíkan fjölda. Þekkt er að nú þegar eru langir biðlistar eftir margvíslegri opinberri þjónustu í Reykjavík. Einnig þarf að meta hvernig húnæðismarkaðurinn í borginni er í stakk búinn til að taka á móti slíkum fjölda. Ekkert liggur fyrir um kostnað við slíkan fjöldaflutning né kostnaðarskiptingu ríkis og borgar,“ segir ennfremur.

Kjartan bendti á að sá fjöldi sýrlenskra flóttamanna sem komið hefði til Evrópu væri aðeins lítill hluti vandans eða um 2% af þeim tíu milljónum sem talið væri að hefðu flúið heimili sín vegna borgararstyrjaldarinnar í Sýrlandi. „Bent hefur verið á að það sé mun líklegra til árangurs að Vesturlönd auki hjálparstarf sitt sem næst átakasvæðinu og leggi þannig áherslu á að hjálpa sem flestum, þ.e. þeim milljónum sem búa við erfiðar aðstæður í flóttamannabúðum í Tyrklandi, Jórdaníu, Líbanon og Sýrlandi sjálfu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert