Festu bílinn í miðri á

mbl.is/Þórður

Lögreglumenn og björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í kvöld til þess að aðstoða ferðafólk sem festi bifreið sína úti í Grafarlandaá við Öskjuveg.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var bifreiðin dregin á þurrt en er óökufær. Verið er að flytja fólkið á Mývatn en því mun ekki hafa orðið meint af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert