Malbikað verður á hringveginum, á Hafnarmelum og á Kjalarnesi, í dag. Siglufjarðarvegur er enn lokaður vestan við Strákagöng vegna skriðufalla og skemmda.
Í dag, miðvikudaginn 2. september, er unnið við malbikun á hringvegi (1) á Hafnarmelum, og eins á Kjalarnesi á milli Brautarholtsvegar og Hvalfjarðarvegar. Búast má við að vinna standi til kl. 21. Nokkur truflun verður á umferð meðan á framkvæmdum stendur.
Í dag verða malbiksviðgerðir á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Um er að ræða stuttar lokanir á litlum köflum en þó aðeins á einni akrein í einu. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á vinnu stendur en umferð verður stjórnað og hjáleiðir merktar ef þörf er á. Áætlaður verktími er 09:00-15:00