Íslendingum ber að bjarga mannslífum

Lögregla handtekur flóttamannafjölskyldu í Budapest í dag.
Lögregla handtekur flóttamannafjölskyldu í Budapest í dag. AFP

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, segir að Íslendingum ber að koma flóttamönnum frá Sýrlandi til hjálpar. Agnes minnir á Hjálparstarf kirkjunnar og þá þekkingu sem þar hefur skapast til þess að leiða Íslendinga áfram í aðstoð við flóttamenn. 

Í tilkynningu frá Agnesi er vitnað í ályktun frá Hjálparstarfi kirkjunnar um að evrópskt samfélag verði að bregðast við neyð flóttamanna. Þar segir m.a.: „Evrópubúar eru í aðstöðu til að rétta hjálparhönd og stjórnvöld mega ekki bregðast þeirri skyldu sinni að virða rétt fólks til mannsæmandi lífs. Við verðum að koma flóttafólki, sem nú streymir til Evrópu til aðstoðar. Fólkið sem hefur flúið heimaland sitt vegna stríðsátaka verður að njóta þeirrar aðstoðar sem því ber samkvæmt alþjóðalögum um mannréttindi og réttindi flóttafólks“.

Hún leggur áherslu á að flóttamannavandinn sé vandi okkar allra og til þess að mæta honum þurfi heildarsýn og fagleg vinnubrögð.

„Fyrsta skrefið er að bjarga mannslífum. Síðan verðum við að styðja fjárhagslega og með sjálfboðavinnu þær stofnanir samfélagsins og félög sem sinna málaflokknum best,“ skrifar Agnes. 

Í tilkynningu Agnesar er Hjálparstarf kirkjunnar aðili að Alþjóðahjálparstarfi kirkna ACT - Alliance sem ásamt því að vinna að þróunarsamvinnu veitir neyðaraðstoð í kjölfar náttúruhamfara og vegna vopnaðra átaka. Aðstoðin er veitt án skilyrða og aðgreiningar og fer fram eftir alþjóðlegum stöðlum um neyðaraðstoð og ströngum siðareglum.

Hjálparstarf kirkjunnar veitir neyðaraðstoð vegna stríðsátaka á Sýrlandi í gegnum ATC þar sem leitast er við að uppfylla grunnþarfir hinna stríðshrjáðu. 

Áhersla er lögð á vernd og aðstoð til handa konum og börnum á vergangi í landinu og flóttafólki í nágrannalöndunum.

Agnes bendir jafnframt á að hér heima hafi prestur innflytjenda verið starfandi í þjóðkirkjunni um árabil. „Séra Toshiki Toma þekkir vel aðstæður innflytjenda, flóttamanna, hælisleitenda og langtímagesta á Íslandi. Hann veitir sálgæslu, skipuleggur námskeið, fræðslufundi, annast helgihald í samstarfi við sóknarkirkjur og fleira mætti nefna. Á Suðurnesjum hafa sóknir kirkjunnar í samstarfi  við fleiri aðila lagt lið flóttamönnum sem hingað koma,“ skrifar biskup.

Síðar í þessum mánuði er aðalfundur Hjálparstarfs kirkjunnar og að sögn biskups verður flóttamannavandinn í heiminum mikilvægt umfjöllunarefni.

Hinn 22. október fer svo fram ráðstefna um málefni flóttamanna á vegum Kirkjunnar í samstarfi við Rauða kross Íslands og fleiri aðila. Ennfremur hvetur biskup söfnuði Þjóðkirkjunnar að efna til samskota í kirkjum landsins sunnudaganna 13. september og 20. september nk. til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar í starfsemi sinni innan ACT – Alliance á Sýrlandi og Jórdaníu.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert