Ítrekaði stuðning við þvingunaraðgerðir

Utanríkisráðherrarnir
Utanríkisráðherrarnir

Flóttamannavandinn, loftslagsmál, samskipti við Rússland og þróun mála í Úkraínu voru meðal þess sem rætt var á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna sem haldinn var í Kaupmannahöfn í gær og í dag.

Í umræðum um ástandið í Úkraínu ítrekaði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra stuðning Íslands við þvingunaraðgerðir gegn Rússum en útskýrði jafnframt þá erfiðu stöðu sem blasir nú við íslenskum sjávarútvegi eftir að Rússland bætti Íslandi á lista yfir lönd í innflutningsbanni. Gunnar Bragi fjallaði einnig um öryggismál í norðanverðri Evrópu og mikilvægi norrænnar samvinnu í varnarmálum. Að fundi loknum samþykktu ráðherrarnir yfirlýsingu um svæðisbundin öryggismál.

Leiðtogafundur um loftslagsmál sem haldinn verður í París í desember nk. var ennfremur á dagskrá og voru ráðherrarnir sammála um nauðsyn þess að styðja fjárhagslega við aðgerðir í þróunarríkjum til þess að sporna gegn loftslagsbreytingum.

Af öðrum málum sem rædd voru má nefna málefni Grikklands, væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu, orkuöryggi í Evrópu, uppgang hryðjuverkasamtakanna ISIS í Miðausturlöndum og Norður Afríku og ástandið á Miðjarðarhafinu, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Að ráðherrafundinum loknum átti utanríkisráðherra tvíhliðafund með Kristian Jensen sem tók við embætti utanríkisráðherra Danmerkur fyrr í sumar. Auk tvíhliða mála ræddu ráðherrarnir meðal annars um þróunarsamvinnu, málefni norðurslóða og flóttamannavandann í Evrópu.      

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert