Vélarvana út af Vopnafirði

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Trilla varð vélarvana út af Vopnafirði í kvöld og var björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson sent á staðinn til þess að koma henni í land samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

Björgunarstarfið gekk vel og var komið til Vopnafjarðar um klukkan tíu í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert