Eftirlýstur maður handtekinn

Lögreglustöðin Hverfisgötu
Lögreglustöðin Hverfisgötu mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á þriðja tímanum í nótt mann sem var eftirlýstur af lögreglu. Maðurinn var handtekinn þar sem hann reyndi að komast inn í bifreiðar í austurhluta borgarinnar. Hann er vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. 

Um fjögurleytið var tilkynnt um innbrot í skóla í Hafnarfirði.Ekki er vitað um hvort einhverju var stolið.

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóðtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert