Heppinn Finni fær 5,6 milljarða

Einn ótrúlega heppinn Finni vann tæpa 5,6 milljarða í EuroJackpot í kvöld Hann sat einn að fyrsta vinningnum en fjórir skiptu á milli sín öðrum vinningi og fá þeir allir tæpar 53 milljónir í sinn hlut.

Tveir þeirra sem skiptu með sér öðrum vinning eru búsettir í Finnlandi og hinir tveir í Þýskalandi. Einn hlaut þriðja vinning og fær hann einnig tæpar 53 milljónir.

Þá var einn með fjór­ar rétt­ar töl­ur í réttri röð í Jóker og fær hann 100.000. Sá miði var seldur í Olís við Háaleitisbraut.

Vinn­ingstöl­ur í Eurojackpot voru 12-23-37-41-46  og stjörnu­töl­urn­ar 3 og 7.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert