Líf allra skipta máli - samstöðufundur

Börn á flótta við landamæri Grikklands
Börn á flótta við landamæri Grikklands AFP

Boðað hefur verið til samstöðufundar á Lækjartorgi á morgun undir formerkjunum „Líf allra skipta máli“. 

Það er hópurinn Ekki fleiri brottvísanir sem stendur að fundinum sem hefst klukkan 15. Á Facebooksíðu hópsins segir: „Sýnum að okkur sé ekki sama um þá né aðra sem hingað leita í leit að aðstoð og stað til að skapa sér heimili. Sýnum að þeirra líf skipti jafn miklu máli og líf þeirra sem eru fæddir hér. Mætum á Lækjartorg á laugardaginn og þrýstum á stjórnvöld að leyfa þeim að vera.“

Sjá nánar hér

Tyrkneskir hermenn á landamærum Sýrlands
Tyrkneskir hermenn á landamærum Sýrlands AFP
Örmagna flóttamenn á eyjunni Lesbos þar sem biðin eftir skráningu …
Örmagna flóttamenn á eyjunni Lesbos þar sem biðin eftir skráningu getur tekið á. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert