Sigurbjörn skólameistari á Laugum

Framhaldsskólinn á Laugum.
Framhaldsskólinn á Laugum.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Dr. Sigurbjörn Árna Arngrímsson skólameistara Framhaldsskólans á Laugum til fimm ára.

Sigurbjörn Árni hefur B.S. Ed. gráðu frá University of Georgia í íþrótta- og heilsufræði, M.A. gráðu í íþróttafræði og Ph. D í íþróttafræði frá sama skóla.

Hann hefur gengt stöðu prófessors og varadeildarforseta Íþrótta- og tómstunda- og þroskaþjálfadeildar við Háskóla Íslands frá 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert