Umferðarslys varð á Vesturlandsvegi við Suðurlandsveg skömmu fyrir miðnætti. Fólksbifreið, sem ekið var vestur, rakst á jeppa þegar henni var sveigt á milli akreina í framúrakstri.
Jeppinn lenti utan vega og skemmdist eitthvað. Fólksbifreiðin lenti þversum á ljósastaur og er mikið skemmd og ljósastaurinn féll í götuna.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið og tveir aðrir meiddust eitthvað.
Ekki eru upplýsingar um meiðsl, hvorki hjá lögreglu né slökkviliði.
Bæði ökutækin voru óökufær eftir óhappið og voru fjarlægð með dráttarbílum.