Karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild eftir árás á Akranesi síðdegis á föstudag. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins, að sögn varðstjóra í lögreglunni á Akranesi.
Að sögn lögreglu er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu annað en að um alvarlegt atvik er að ræða.