Nauðsynlegt að styðja við Helguvík

Uppbygging í Helguvík hefur verið kostnaðarsöm.
Uppbygging í Helguvík hefur verið kostnaðarsöm.

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem haldin var um helgina, skorar á ríkisvaldið að styðja við uppbyggingu í Helguvík. Þetta kemur fram í ályktun um hafnamál sem lögð var fram á fundinum.

Þessa daganna er verið að reisa kísilver United Silicon og gert er ráð fyrir að uppbygging Thorsil hefjist á næsta ári. Í ályktuninni kemur fram að uppbygging í Helguvík hafir tekið á fjárhagslega hjá Reykjanesbæ og fyrirsjáanlegur er töluverður kostnaður við áframhaldandi uppbyggingu á næstu árum.

Er lagt til að fyrirhuguðum hafnarframkvæmdum sem og kostnaði vegna fyrri framkvæmda verði sett á fjárlög 2016. Jafnframt verði horft til þess að á næstu fjórum árum þar á eftir komi fjárframlög.

Aðalfundurinn bendir á að þjóðhagslegur ávinningur framkvæmda í Helguvík er margfaldur umfram þau fjárframlög sem óskað er eftir að lagt verði í verkefnið. Samkvæmt samþykktu svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 er gert ráð fyrir því að Helguvíkurhöfn gegni hlutverki sem útskipunarhöfn Suðurnesja og er hún mikilvæg í allri atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum.

Þar að auki er bent á að í svæðisskipulagi Suðurnesja eru hafnirnar í Grindavík og Sandgerðiskilgreindar sem fiskihafnir og að er ekki gert ráð fyrir nýjum höfnum. Að mati aðalfundarins er nauðsynlegt er að endurgera þil við Miðgarð í Grindavík og þil í Sandgerðishöfn. Í ályktuninni kemur fram að fyrrgreind þil séu frá 1964-1978 og en meðallíftími bryggjuþilja 40 ár.

Vitnað er í minnisblað Vegagerðarinnar um stálþilið í Grindavík frá því í vor þar sem fram kemur að ástand stálþilsins er ekki gott enda þilið orðið um 50 ára gamalt. Metur Vegagerðin það sem svo að brýn þörf sé á að endurbyggja bryggjuna innan mjög fárra ára. Grindavíkurhöfn er með næstmesta verðmæti afla á hvern metra viðlegukants á landinu. Afar mikilvægt er að allir viðlegukantar séu í notkun og hægt sé að veita þjónustu hratt og örugglega, svo skip komist sem fyrst aftur á sjó til veiða.

Einnig kemur fram að í minnisblaði hafnasviðs Vegagerðarinnar síðan í febrúar sé sagt frá því að víða hafi myndast göt á stálþil Sandgerðishafnar vegna tæringar. Burðargetan er mjög skert eða aðeins 20% af upprunalegum styrk þilsins og hefur þurft að takamarka þungaumferð um bryggjuna.

„Brýn þörf er á að allar bryggjurnar séu nothæfar enda er Sandgerðishöfn meðal þeirra hafna þar sem flestar landanir eru á ári hverju,“ segir m.a. í ályktuninni og kemur þar að auki fram að Vegagerðin meti brýna þörf á að endurbyggja bryggjurnar í Grindavík og Sandgerði innan mjög fárra ára

Uppbygging kísilvers United Silicon í Helguvík.
Uppbygging kísilvers United Silicon í Helguvík. Ljósmynd/Hilmar Bragi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert