Rigning um mestallt landið

Gert er ráð fyrir minnkandi suðaustanátt á landinu næsta sólarhringinn, 8-15 metrum á sekúndu með morgninum og hægari vestantil. Rigning verður um mestallt land. Mikil úrkoma verður á Suðausturlandi fram á nótt.

Á morgun er spáð suðaustan 5-10 m/s og vætu víða, en úrkomulítið um landið norðanvert síðdegis. Hiti verður á bilinu 4-12 stig og hlýjast Norðaustanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert