Gleymdist að slökkva á eldavél

mbl.is/Eggert

Tilkynning barst frá öryggisverði rétt fyrir klukkan tvö í nótt um reykjarlykt frá íbúð í austurbæ Reykjavíkur og fór lögregla og slökkvilið á vettvang.

Kom í ljós að gleymst hafði að sl0kkva á eldavél með þeim afleiðingum að eldur hafði komið upp í potti. Einhverjar reykskemmdir urðu en engin meiðsl á fólki.

Ennfremur var ölvaður ökumaður handtekinn upp úr klukkan þrjú í vesturbæ Reykjavíkur og færður til lögreglustöðvar til sýnatöku.

Þá var nokkuð um minniháttar útköll tengd ölvun og ónæði, bæði innan- og utandyra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert