Sjómenn greiða tugi þúsunda fyrir internet

Sjómenn að störfum.
Sjómenn að störfum. mbl.is/Árni Sæberg

Alþekkt er að skipverjar á ísfisks-eða frystitogurum greiði yfir 10 til 20 þúsund krónur fyrir internetnotkun á hafi úti í mánuði hverjum. Á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness segir að á ársgrundvelli séu margir skipverjar að greiða yfir 100 þúsund krónur fyrir internetnotkun um borð í skipunum og að því hafi félagið ákveðið að leita eftir upplýsingum í hverju þessi mikli kostnaður sé fólginn.

„Félagið sendi erindi til HB Granda sem er nú með málið til skoðunar hjá sér en væntanlega er fyrirtækið að kaupa þessa þjónustu af Radíómiðlun. Samkvæmt upplýsingum félagsins þá á þessi mikli kostnaður að vera vegna kaupa á þjónustu um gervihnött sem öll samskipti fara í gegnum,“ segir á heimasíðu félagsins.

Segir að heildarkostnaður á frystitogara fyrir internetnotkun virðist vera á bilinu 300 til 350 þúsund á mánuði eða sem samsvarar yfir 4 milljónum á ársgrundvelli. Á ísfiskstogurunum er þessi upphæð eitthvað lægri en skipverjarnir á þessum skipum greiða í kringum 70% af þessum kostnaði.

„Það hlýtur að vera hægt að láta kanna ítarlega í hverju þessi mikli kostnaður er fólginn og jafnvel að kanna hvort hægt sé að láta bjóða þessa þjónustu út til að lækka kostnaðinn. Internettenging um borð í þessum skipum er mjög mikilvæg skipverjum til að vera tengdir við umheiminn ef þannig má að orði komast og var mikið framfaraskref þegar þetta varð að veruleika á sínum tíma,“ segir á vefsíðu VLFA.

„En það þýðir ekki að sjómenn séu tilbúnir að borga hvað sem er fyrir þessa þjónustu og því þarf að leita allra leiða til að sjá hvað veldur þessum mikla kostnaði og hvort hægt sé að ná honum niður án þess að skerða þjónustu.“


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert