Íbúar norðan heiða hafa notið hlýinda og blíðviðris í dag. Hæst fór hitinn í 15,7 stig í Ásbyrgi og Siglufjörður fylgdi fast á eftir, en þar mældist hitinn 15,4 stig. Í nótt mældist 13 stiga hiti á Akureyri.
Tíðindamaður mbl.is á Akueyri segir að hitinn hafi verið svipaður í dag í blankalogni. „Sumarið er líklega loksins komið,“ segir hann kíminn.
Himinninn í kvöld var mjög fagur eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum.