Fengu bíl á styrktartónleikum

mbl.is/Styrmir Kári

Foreldrar Elísu Margrétar Hafsteinsdóttur, þau Hafsteinn Vilhelmsson og Gyða Kristjánsdóttir, fengu lykla að Toyota Avensis-hlaðbak í lok styrktartónleika í Austurbæ í gærkvöldi. Elísa, sem fæddist 2012, er fjölfötluð; með heilasjúkdóm, lungnasjúkdóm og þjáist af flogaveiki.

Hún getur hvorki stjórnað hreyfingum né talað og þarf stöð- uga umönnun. Bræðurnir Nökkvi Fjalar Orrason og Jóhann Fjalar Skaptason hafa safnað um fjórum milljónum króna handa fjölskyldu hennar. Foreldrar Elísu gátu vart leynt gleði sinni og undrun í gærkvöldi þegar Jóhann og Nökkvi afhentu þeim lyklana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert