Þrír rithöfundar tilnefndir

Félagið Ibby hefur tilnefnt verk þriggja íslenskra rithöfunda á heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna, en hver landsdeild samtakanna tilnefnir einn rithöfund, einn myndhöfund og einn þýðanda.

Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í ágúst 2016 í Auckland, Nýja-Sjálandi, og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim í tvö ár, segir í tilkynningu á vef Ibby.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert