Karlmaðurinn sem lést eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás á Akranesi hét Karl Birgir Þórðarson. Hann var fæddur árið 1957 og lést á gjörgæslu Landspítalans síðastliðinn miðvikudag.
Frétt mbl.is: Lést á sjúkrahúsi
Karlmaður á fertugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins, grunaður um manndráp.
Lögreglan var kölluð að húsi á Akranesi sl. föstudag ásamt sjúkraliði þar sem tilkynnt hafði verið um meðvitundarlausan mann og líklega væri um hengingu að ræða. Á vettvangi hafi verið vitni sem kom að og hafði hafið endurlífgun.
Karl Birgir komst aldrei til meðvitundar.