Heimilum sem fá greidda fjárhagsaðstoð fækkaði í fyrra og er það í fyrsta skipti frá árinu 2007 sem það gerist.
Árið 2014 fengu 7.749 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fækkað um 293 (3,6%) frá árinu áður. Árið 2013 fjölgaði heimilum hins vegar um 306 (4,0%) milli ára og árið 2012 um 21 (0,3%), en hafði fjölgað að jafnaði um 860 árin á undan frá árinu 2007.
Breyting í fjölda fjárhagsaðstoðarþega hefur haldist í hendur við þróun atvinnuleysis eins og kemur fram í myndinni, sem sýnir fjölda viðtakenda fjárhagsaðstoðar og árlegt hlutfall atvinnuleysis árin 2003 til 2014.
Frá árinu 2013 til 2014 jukust útgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar um 203 milljónir eða 4,5%, en á föstu verðlagi jukust þau um rúmlega 2%. Meðalmánaðargreiðslur fjárhagsaðstoðar hækkuðu á sama tíma um 3 þúsund kr. eða 4,5%, en á föstu verðlagi hækkuðu þær um rúm 2%. Mánaðarfjöldi sem fjárhagsaðstoð var greidd var 4,8 mánuðir að meðaltali 2014, en 4,7 mánuðir 2013.
Einstæðir barnlausir karlar og einstæðar mæður með börn stærstu hóparnir
Af þeim heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2014 voru einstæðir barnlausir karlar (44,8% heimila) og einstæðar konur með börn (24,9% heimila) fjölmennustu hóparnir. Árið 2014 voru tæplega 44% viðtakenda fjárhagsaðstoðar atvinnulausir og af þeim þrír fjórðu án bótaréttar, alls 2.508 einstaklingar.
Á heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2014 bjuggu 12.625 einstaklingar eða 3,8% þjóðarinnar, þar af voru 4.203 börn (17 ára og yngra) eða 5,3% barna á þeim aldri. Árið 2013 bjuggu 13.130 einstaklingar eða 4,0% þjóðarinnar á slíkum heimilum, þar af voru 4.421 barn eða 5,5% barna.
Fimmti hver 65 ára og eldri nýtur félagslegrar heimþjónustu
Árið 2014 nutu 8.617 heimili félagslegrar heimaþjónustu. Fjögur af hverjum fimm þessara heimila voru heimili aldraðra eða 6.943 (80,6%) og hafði þeim fjölgað um 50 (0,7%) frá árinu 2013. Á þessum heimilum aldraðra bjó 8.721 einstaklingur og jafngildir það 19,7% landsmanna 65 ára og eldri. Í Reykjavík naut tæplega fjórðungur (22,6%) 65 ára og eldri félagslegrar heimaþjónustu.
Börnum í dagvist á einkaheimilum fækkar
Árið 2014 nutu 1.699 börn dagvistar á einkaheimilum og hafði þeim fækkað um 243 (12,5%) frá árinu á undan. Alls voru rúm 6,2% barna 0 til 5 ára í slíkri dagvistun árið 2014. Rúm 6% allra barna á fyrsta ári voru í dagvistun á einkaheimili og rúm 30% eins árs barna, en það eru börn sem ekki hafa náð leikskólaaldri.