Lögreglan handtók mann á Flókagötu um tíu leytið í gærkvöldi sem er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Maðurinn er vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Þar sem bifreiðin er ótryggð þá voru númer hennar klippt af.
Um hálf eitt í nótt hafði lögregla afskipti af manni vegna vörslu fíkniefna í húsi í Kópavogi. Málið var afgreitt á staðnum.
Lögreglan stöðvaði för bifreiðar á Breiðholtsbraut um hálf tvö í nótt. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.