Fréttatíminn undir Gunnari Smára

Ljósmynd/Hari

Hópur undir forystu Gunnars Smára Egilssonar hefur keypt allt hlutafé í Miðopnu, eiganda Fréttatímans. Markmið með kaupunum er að efla og styrkja Fréttatímann og auka þátttöku fyrirtækisins á fjölmiðlamarkaði.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá Fréttatímanum.

Þar segir einnig að við kaupin láti Teitur Jónasson, stofnandi og framkvæmdastjóri Fréttatímans, af störfum. Valdimar Birgisson tekur við starfi framkvæmdastjóra og Gunnar Smári verður útgefandi.

Jónas Haraldsson mun ritstýra Fréttatímanum fram að áramótum en þá tekur Þóra Tómasdóttir við sem ritstjóri ásamt Gunnari Smára.

„Fjölmiðlaheimurinn er að ganga í gegnum djúpstæðar tæknilegar og félagslegar breytingar og þær munu ekki aðeins umbreyta markaðnum heldur einnig hafa mikil áhrif á samfélagið,“ segir Gunnar Smári í tilkynningu.

„Við viljum taka þátt í þessum breytingum og hafa á þær góð áhrif. Við erum að upplifa hrörnun eldri miðla og gamalla hugmynda og erum á leið inn í spennandi tíma með fjölþættari og árangursríkari fjölmiðlun sem mun leiða til opnara og lýðræðislegra samfélags.“

Eftir eigendaskiptin verða eigendur Miðopnu þeir Árni Hauksson, Gunnar Smári Egilsson, Hallbjörn Karlsson, Sigurður Gísli Pálmason og Valdimar Birgisson og eiga allir viðlíka stóran hlut.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert