Íburðarmikið íbúðahótel í miðbæinn

Svart og hvítt og óvenjulegt.
Svart og hvítt og óvenjulegt. mbl.is/Árni Sæberg

Nýr kostur í hótelgistingu hefur bæst við ört stækkandi hótelflóru miðbæjarins. Hótel Marina hefur opnað nýtt sjö herbergja íbúðahótel, Hótel Marina Residence.

Um er að ræða sjö svítur, sex 40 fm og eina 75 fm, í tveimur gömlum húsum við hlið hótelsins á Mýrargötu, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Húsin hafa verið gerð upp frá grunni en þó í sinni upprunalegu ásýnd að utan. Gistingunni fylgir einkaþjónn og alls kyns dekur og lúxus sem er persónulega sniðinn að hverjum gesti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert