Enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar í EuroJackpot. Tveir voru með annan vinning og hlýtur hver þeirra tæpar 72 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru báðir keyptir í Þýskalandi.
Að þessu sinni voru sex með þriðja vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 8 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir á Ítalíu, Spáni og Króatíu auk þriggja í Þýskalandi.