Rótarýklúbbur Sauðárkróks býður bæjarbúum og Skagfirðingum öllum til jólahlaðborðs í íþróttahúsinu á morgun, laugardag.
Þetta er í þriðja sinn sem boðið er til svo veglegrar veislu, en 700-800 manns hafa þekkst boðið undanfarin ár.
Þetta er orðið stærsta verkefni klúbbsins, sem í gegnum tíðina hefur komið að mörgum góðum málum í sínu nærsamfélagi.